|
10.03.2010
| Fréttir |  |
| Esjan! |
Þeir sem eru orðnir æstir í að mæta í bolta geta gert það hjá nýju utandeildarliði sem Gunnar Jóhannsson fyrrverandi Boutrosmaður stofnaði fyrir skömmu.
Æfingatímar Esjunnar
Allar æfingar eru á gervigrasvelli KR.
Mánudagar kl 20:45
Fimmtudagar kl 20:45
Fyrsta æfing frí. |
 |
| toggi skrifaði þann 02.02.2009 |
| Áframhald á bolta? |
Ég fæ áfram emaila frá fífunni og nú barst mér þessi hérna:
-----------------------------
Sælir ágætu leiguaðilar
Eins og við var að búast þá héldu flestir ykkar áfram, en þó urðu breytingar þannig
að á mánudögum kl. 22:00 - 23:00 er nú á lausu ½ völlur ( eða 2 kvartvellir )
Ef einhver hefur áhuga þá er um að gera að hafa samband sem fyrst
------------------------------------
Er nógu mikill áhugi fyrir þessu? |
 |
| hoddih skrifaði þann 13.01.2009 |
| Æfingar til sumars? |
veit einhver um eitthvað gott og ódýrt svæði sem við gætum hugsanlega fengið - spurning um að taka bara 1/4 völl í kórnum, það ætti að duga okkur miðað við mætingarnar upp á síðkastið..
allavega, skoðanir á þetta mál, ég skal fara í málið ef við getum komið okkur saman um einhvern völl..
by the way: þessi teljari hérna á síðunni, er hann ekki bara eitthvað bull ?
|
 |
| Hössi skrifaði þann 09.01.2009 |
| Æfingamót |
Gleðilega jól fótboltasnúðarnir mínir.
Ég var beðinn um að pósta þessu á ykkur, hugleiðið þennan möguleika í fríinu og tjáið ykkur endilega. Ég er persónulega alveg til í eitthvað svona:
Hvering lýst ykkur á að halda svona lítið utandeildarmót svona æfingarleikjamót...fyrir Stóra mótið
Hér fyrir neðan er info um mótið Endilega spjallið við ykkar menn og látið mig vita hvað ykkur Finst...Mér list mjög vel á þetta en hvað finst ykkur?
Hverjir standa að mótinu: Knattspyrnudeild ÍR mun sjá um mótið að öllu leiti í samstarfi við aðila úr mótsnefnd utandeildarinnar.
Keppnisstaður: Gerfigras ÍR í Mjódd.
Þátttökufjöldi liða: 16.lið. Getum mögulega tekið við 20.liðum ef skráning verður góð. Lámark 3 leikir á lið..... Ef 20.lið skrá sig þá verða lámark 4 leikir á lið.
Keppnisfyrirkomulag: 4.riðlar og fyrsta liðið í hverjum riðli fer í úrslitakeppni.
Keppnisdagar: Keppt eftirfarandi helgar í mars og apríl. Helgina 14-15 mars, 21-22 mars, 28-29 mars, 4-5 apríl, 18-19 apríl, 25-26 apríl.
Leiktími: 2 x 40 mín.
Þátttökugjald:40.000kr per lið. Staðfestingargjald er 15.000kr og skal vera greitt fyrr 20.janúar, en eftirstöðvar fyrir 3.mars 2009.
Dómarar: Koma frá knattspyrnudeild ÍR og einnig annarstaðar frá. Mótsnefnd sér um að útvega dómara á leikina.
Verlaun: Verlaunapeningar fyrir fyrsta og annað sætið. Veglegur ÍR-Open bikar fyrir sigurvegara mótsins. Markarskorari mótsins og einnig besti leikmaðurinn. (Valið fer fram hjá mótsnefnd).
Keppnisreglur: Keppt eftir reglum KSÍ um utanhússknattspyrnu í meistaraflokki.
Hlutgengi leikmanna: Allir leikmenn þurfa að vera skráðir áður en keppni hefst.
Hvar er skráning: Skráning er í síma 8916320 eða með e.maili á irknattspyrna@hotmail.com
|
 |
| Hössi skrifaði þann 26.12.2008 |
| !!!!!!!!!!!! |
gleðileg jól og allt það! |
 |
| Alli skrifaði þann 24.12.2008 |
|
|
|
|
 |
| Styrktaraðilar Boutros Ghali eru: |  |
|